Sex Íslendingar á verðlaunapalli í Hróarskeldu
Alls tóku 15 íslenskir borðtennismenn þátt í Bauhaus Arena Cup mótinu í Hróarskeldu í Danmörku, sem fram fór helgina 1.-2. febrúar sl. Tólf þeirra voru úr BH og þrír úr KR (sjá frétt frá 31. janúar). Magnús Jóhann Hjartarson úr Víkingi, sem var skráður til leiks á mótinu, veiktist og tók ekki þátt í mótinu.
Sex Íslendinganna komust á verðlaunapall, þar af fékk Magnús Gauti Úlfarsson verðlaun í tveimur flokkum.
Íslensku verðlaunahafarnir á mótinu:
Puslinge C
1. Nikulás Dagur Jónsson, BH
Drenge D
1. Alexander Ivanov, BH
U21 Elite
1. Magnús Gauti Úlfarsson, BH
3. Birgir Ívarsson, BH
Senior 1
3. Magnús Gauti Úlfarsson, BH
Senior alle
3. Ársól Clara Arnardóttir, KR
Åben A
4. Jóhannes Bjarki Urbancic Tómasson, BH
Forsíðumynd af BH hópnum í ferðinni tekin af fésbókarsíðu BH.
Uppfært 5.2.