Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Sex íslenskir leikmenn leika á Norður-Evrópumótinu í Eistlandi

Norður-Evrópumót (NETU) fullorðinna hefst í Rakvere í Eistlandi þann 24. september og stendur til 27. september.

Sex íslenskir leikmenn leika á mótinu, fjórir karlar og tvær konur:

Birgir Ívarsson, BH
Guðbjörg Vala Gunnarsdóttir, KR
Ingi Darvis Rodriguez, Víkingi
Magnús Gauti Úlfarsson, BH
Matthías Þór Sandholt, BH
Sól Kristínardóttir Mixa, BH

Nevena Tasic, Víkingi, var valin í liðið en þurfti að draga sig úr liðinu.

Karlaliðið leikur í liðakeppni, og hefst keppnin 24. september. Bæði karlar og konur keppa í einstaklingsgreinum.

Dregið hefur verið í riðla í liðakeppni karla og leikur Ísland í liði með Eistlandi-1 og Litháen. Leikurinn við Litháen er kl. 18 að staðartíma þann 24. september en leikurinn við Eistland-1 kl. 9.00 morguninn eftir.

Einnig hefur verið dregið í riðla í einliðaleik en keppni hefst kl. 17 þann 25. september en í tvíliðaleiksgreinum þann 26. september.

Vefsíða mótsins: https://eltl.ee/voistlused/575

Á forsíðumyndinni má sjá þá þrjá karla sem unnu sig inn í karlaliðið á topp 8 mótinu í byrjun september.

Aðrar fréttir