Sindri og Guðrún sigruðu á Grand Prix móti Akurs
Sindri Þór Sigurðsson úr Víkingi og Guðrún Gestsdóttir, KR sigruðu á Grand Prix móti Akurs, sem haldið var í Íþróttahúsi Glerárskóla á Akureyri sunnudaginn 3. september. Magnús B. Kristinsson, Akri, sigraði í B-keppni karla. Skráðir keppendur voru 20 í karlaflokki og 5 í kvennaflokki frá Akri, KR, Umf. Samherja og Víkingi.
Mótið tókst vel og var styrkt af Samherja, Norðlenska og 66 sem gáfu verðlaun á mótið. Keppendur þurftu ekki að dæma heldur voru fullorðnir dómarar á öllum borðum.
Úrslit
Opinn flokkur karla
- Sindri Þór Sigurðsson, Víkingi
- Kári Mímisson, KR
3.-4. Ellert Kristján Georgsson, KR
3.-4. Jóhannes Bjarki Urbancic Tómasson, BH
Sindri sigraði Kára 4-1 (9-11, 11-9, 11-8, 11-9, 11-8) í úrslitaleiknum.
Opinn flokkur kvenna
- Guðrún Gestsdóttir, KR
- Ársól Clara Arnardóttir, KR
3.-4. Hildur Halla Þorvaldsdóttir, KR
3.-4. Lára Ívarsdóttir, KR
Guðrún vann Ársól 4-2 (11-8, 9-11, 2-11, 11-3, 11-6, 11-2) í úrslitaleiknum.
B-keppni flokkur karla
- Magnús Kristinsson Akur
- Gunnar Skúlason KR
- Matthías Benjamínsson KR
Öll úrslit verða sett á vef Tournament Software á næstu dögum.
Myndir eru frá Starra Heiðmarssyni.
ÁMU