Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Skráðir keppendur frá 12 félögum á fyrsta borðtennismóti Garps

Borðtennisdeild Garps hélt fyrsta borðtennismót sitt í Íþróttahúsi Laugalandsskóla í Holtum laugardaginn 26. apríl. Keppt var í opnum flokkum karla og kvenna og í aldursflokkum 15 ára og yngri. Nýmæli er að keppt var í flokkum 9 ára og yngri og var þátttaka góð í þessum flokkum.

Skráðir þátttakendur voru 66 frá 12 félögum og er þetta því með stærri mótum ársins utan Íslandsmóta.

Á Suðurlandi er það svo helst í fréttum að Umf. Hekla á Hellu hefur hafið vikulegar æfingar fyrir tvo aldurshópa, öll fimmtudagskvöld. Félagið var virkt fyrr á öldinni og átti 16 leikmenn á styrkleikalistanum á tímabilinu 2017-2019 en síðast kepptu leikmenn undir merkjum félagsins vorið 2020. Þeir leikmenn æfðu hins vegar hjá Borðtennisdeild Dímonar á Hvolsvelli og því er mjög ánægjulegt að æfingar séu komnar af stað hjá félaginu.

Ellert Kristján Georgsson, KR, sigraði í opnum flokki karla og Weronika Grzegorczyk, Garpi, í opnum flokki kvenna.
Sigurvegarar í unglingaflokkum voru þessi: Helma Fanney Línadóttir, Umf. Laugdæla (U9), Dalmar Bragi Aronsson, KR (U9), Hjörleifur Brynjólfsson, HK (U11), Greta Sólrún Mclaughlin Svansdóttir, KR (U13), Dawid May-Majewski, BH (U13) og Adam Lesiak, Víkingur (U15).

Verðlaunahafar:

U9 stelpur
1. Helma Fanney Línadóttir, Umf. Laugdæla
2. Ingibjörg Halla Gestsdóttir, Umf. Gnúpverja
3.-4. Kolbrún María Pierresdóttir, Garpur
3.-4. Salka Sigríður Sigurðardóttir, Garpur

U9 strákar
1. Dalmar Bragi Aronsson, KR
2. Úlfur Guðnason, Umf. Laugdæla
3.-4. Elías Emanuel Gunnarsson, Garpur
3.-4. Ómar Snær Hróbjartsson, Garpur

U11 hnokkar
1. Hjörleifur Brynjólfsson, HK
2. Brynjar Gylfi Malmquist, HK
3.-4. Björn Kári Valsson, HK
3.-4. Esteban Gabríel O. Gunnarsson, Garpur

U13 telpur
1. Greta Sólrún Mclaughlin Svansdóttir, KR
2. Védís Daníelsdóttir, Umf. Laugdæla
3. Sigrún Ýr Hjartardóttir, Garpur
4. Emma Hertervig, KR

U13 piltar
1. Dawid May-Majewski, BH
2. Benedikt Darri Malmquist, HK
3.-4. Sindri Þór Rúnarsson, HK
3.-4. Jörundur Steinar Hansen, HK

U15 sveinar
1. Adam Lesiak, Víkingur
2. Almar Elí Ólafsson, Umf. Selfoss
3.-4. Ari Jökull Jóhannesson, Leiknir
3.-4. Þorgeir Óli Eiríksson, Garpur

Opinn flokkur kvenna
1. Weronika Grzegorczyk, Garpur
2. Sóldís Lilja Sveinbjörnsdóttir, Garpur
3. Margrét Ólafsdóttir, Garpur

Opinn flokkur karla
1. Ellert Kristján Georgsson, KR
2. Eiríkur Logi Gunnarsson, KR
3.-4. Norbert Bedö, KR
3.-4. Pétur Marteinn Tómasson, BH

Úrslit úr öllum leikjum á mótinu eru komin á vef Tournament Software, https://www.tournamentsoftware.com/tournament/241844C5-311D-41D6-9B37-3E532F34964F

Myndir frá Auði Tinnu Aðalbjarnardóttur.

Aðrar fréttir