Skúli Gunnarsson nýr formaður Borðtennisdeildar KR
Á aðalfundi Borðtennisdeildar KR þann 28. mars sl. var kjörin ný stjórn deildarinnar. Skúli Gunnarsson var kosinn formaður deildarinnar, en hann tekur við af Aldísi Rún Lárusdóttur, sem gaf ekki kost á sér til endurkjörs.
Aðrir í stjórn eru Ársól Clara Arnardóttir, Ásta M. Urbancic, Magnús Stefánsson og Pétur Gunnarsson. Ársól og Pétur koma ný inn í stjórnina, eins og Skúli.
Í varastjórn sitja Hannes Guðrúnarson, Hlöðver Steini Hlöðversson og Guðrún Gestsdóttir.
ÁMU