Staðan í Grand Prix og Aldursflokkamótaröðunum
Í meðfylgjandi skjölum má sjá stöðuna að loknum tveimur mótum í Grand Prix og Aldursflokkamótaröðunum.
Í Grand Prix mótaröðinni eru Magnús Gauti Úlfarsson, BH og Sindri Þór Sigurðsson, Víkingi efstir í karlaflokki með 8 stig. Í kvennaflokki eru Guðrún Gestsdóttir, KR og Stella Karen Kristjánsdóttir, Víkingi efstar með 8 stig.
Í Aldursflokkamótaröðinni hafa tveir keppendur unnið bæði mótin í sínum flokki. Það eru Ársól Clara Arnardóttir, KR í stúlknaflokki og Eiríkur Logi Gunnarsson, KR í piltaflokki.
Staðan í Grand Prix mótaröðinni: Grand prix mótaröðin 2017-18
Staðan í Aldursflokkamótaröðinni: Aldursflokkamótaröðin 2017-18
Mynd af Sindra á forsíðu frá Finni Hrafni Jónssyni, okt. 2016.
ÁMU