Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Staðan í Grand Prix og Aldursflokkamótaröðunum

Í meðfylgjandi skjölum má sjá stöðuna að loknum tveimur mótum í Grand Prix og Aldursflokkamótaröðunum.

Í Grand Prix mótaröðinni eru Magnús Gauti Úlfarsson, BH og Sindri Þór Sigurðsson, Víkingi efstir í karlaflokki með 8 stig. Í kvennaflokki eru Guðrún Gestsdóttir, KR og Stella Karen Kristjánsdóttir, Víkingi efstar með 8 stig.

Í Aldursflokkamótaröðinni hafa tveir keppendur unnið bæði mótin í sínum flokki. Það eru Ársól Clara Arnardóttir, KR í stúlknaflokki og Eiríkur Logi Gunnarsson, KR í piltaflokki.

Staðan í Grand Prix mótaröðinni: Grand prix mótaröðin 2017-18

Staðan í Aldursflokkamótaröðinni: Aldursflokkamótaröðin 2017-18

Mynd af Sindra á forsíðu frá Finni Hrafni Jónssyni, okt. 2016.

 

ÁMU

Aðrar fréttir