Starf unglingalandsliðsþjálfara laust til umsóknar. Umsóknarfrestur til 6. mars nk.
Borðtennissambandið auglýsir lausa til umsóknar stöðu unglingalandsliðsþjálfara. Einar Geirsson núverandi unglingalandsliðþjálfari er á leið til starfa í Noregi og þarf því nú að ráða nýjan mann í brúnna. Stærsta verkefni unglingalandsliðsþjálfara á þessu ári er Evrópumót unglinga í Bratislava Slóvakíu sem fram fer 10.-19. júlí 2015. Efniviðurinn er nú sterkur og verkefnið spennandi.