Starfskraftur óskast
Stjórn BTÍ leitar eftir aðila til aðstoðar mótanefnd í skipulagningu deildarkeppna næsta tímabils. Gert er ráð fyrir að leikið verði í þremur deildum karla og einni deild kvenna á komandi keppnistímabili.
Verkefnin sem um ræðir:
- Umsjón með skráningum og innheimta mótsgjalda
- Utanumhald um reglugerðarbreytingar vegna nýrrar 3. deildar ofl.
- Raða umferðum í deildum og birta á bordtennis.is
- Sjá um skráningar leikmanna og birtingu á bordtennis.is
- Stilla upp deildarkeppni í TS
Gert er ráð fyrir að verkefnin verði unnin í verktöku og taki um 20-30 tíma.
Umsóknir berist á [email protected] fyrir 10 júlí.