Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Stóra Víkingsmótið í borðtennis

Stóra Víkingsmótið í borðtennis fer fram í  TBR-Íþróttahúsinu Laugardaginn 12. apríl 2025.

Athugið að mótið telur til Lokamóts BTÍ.

Veittir verða verðlaunapeningar fyrir fjögur efstu sæti í hverjum flokki og leikið verður með 3ja stjörnu kúlum.

Dagskrá mótsins:

Laugardagur 12. apríl

  • kl. 10:00 Eldri flokkur karla 60+
  • kl. 10:30 1. flokkur karla og kvenna
  • kl. 11:00 Byrjendaflokkur (Fyrir þá keppendur sem hafa aldrei leikið í 2 flokki áður)
  • kl. 12:30 Meistaraflokkur karla og kvenna
  • kl. 13:00 2. flokkur karla og kvenna

Keppnisfyrirkomulagið er þannig að keppt verður í riðlum og í fjölmennari flokkum fara sigurvegarar úr riðlum og keppa í einföldum úrslætti. Heimilt er að leika í tveimur flokkum.

Þátttökugjald í mótið er kr. 1.500- í hvern flokk.

Síðasti skráningardagur er fimmtudaginn 10. apríl kl 17:00 og skal senda skráningar á netfangið pos@itn.is eða sms skeyti í síma 8940040 fyrir þann tíma. Hægt er að greiða fyrir keppni með millifærslu á reikning Borðtennisdeildar Víkings: Kennitala 6603850379, reikningsnúmer: 0525-26-3693

Yfirdómari: Árni Siemsen
Mótsstjórn skipa: Pétur Ó. Stephensen, Ísak Unnarsson

Dregið verður í mótið fimmtudaginn 10. apríl kl. 18:00 í TBR-Íþróttahúsinu

Skráningar: Pétur s-8940040/pos@itn.is. og sms skeyti.

Síðasti skráningardagur er fimmtudaginn 10. apríl kl. 17:00.

 

Aðrar fréttir