Stóra Víkingsmótið verður 2. desember
Stóra Víkings mótið í borðtennis fer fram í TBR-Íþróttahúsinu laugardaginn 2. desember 2023.
Veittir verða verðlaunapeningar fyrir fjögur efstu sæti í hverjum flokki og leikið verður með 3ja stjörnu kúlum.
Dagskrá mótsins:
Laugardagur 2. des.:
kl. 10:00 Eldri flokkur karla 60+
kl. 10:30 1. flokkur karla og kvenna
kl. 11:00. Byrjendaflokkur (fyrir þá sem hafa ekki leikið í 2 flokki)
kl. 12:30. Meistaraflokkur karla og kvenna
kl. 13:00. 2. flokkur karla og kvenna
Keppnisfyrirkomulagið er þannig að keppt verður í riðlum og í fjölmennari flokkum fara sigurvegarar úr riðlum og keppa í einföldum úrslætti. Heimilt er að leika í tveimur flokkum.
Þátttökugjald í mótið er kr. 1.500- í hvern flokk.
Síðasti skráningardagur er fimmtudaginn 30. nóv. kl 17:00 og skal senda skráningar á netfangið [email protected] eða sms skeyti í síma 8940040 fyrir þann tíma. Hægt er að greiða fyrir keppni með millifærslu á reikning Borðtennisdeildar Víkings: Kennitala 6603850379, reikningsnúmer: 0525-26-3693.
Yfirdómari: Árni Siemsen
Mótsstjórn skipa: Pétur Ó. Stephensen og Jóhann Bjarnason
Dregið verður í mótið fimmtudaginn 30. nóv kl. 18:00 í TBR-Íþróttahúsinu
Skráningar: Pétur s-8940040/[email protected] og sms skeyti.
Síðasti skráningardagur er fimmtudaginn 30. nóv kl. 17:00.
Með Borðtenniskveðju
f.h. borðtennisdeildar Víkings
Pétur Ó. Stephensen