Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Stóra Víkingsmótið verður 2. desember

Stóra Víkings mótið í borðtennis fer fram í TBR-Íþróttahúsinu laugardaginn 2. desember 2023.

Veittir verða verðlaunapeningar fyrir fjögur efstu sæti í hverjum flokki og leikið verður með 3ja stjörnu kúlum.

Dagskrá mótsins:

Laugardagur 2. des.:
kl. 10:00 Eldri flokkur karla 60+
kl. 10:30 1. flokkur karla og kvenna
kl. 11:00. Byrjendaflokkur (fyrir þá sem hafa ekki leikið í 2 flokki)
kl. 12:30. Meistaraflokkur karla og kvenna
kl. 13:00. 2. flokkur karla og kvenna

Keppnisfyrirkomulagið er þannig að keppt verður í riðlum og í fjölmennari flokkum fara sigurvegarar úr riðlum og keppa í einföldum úrslætti. Heimilt er að leika í tveimur flokkum.

Þátttökugjald í mótið er kr. 1.500- í hvern flokk.

Síðasti skráningardagur er fimmtudaginn 30. nóv. kl 17:00 og skal senda skráningar á netfangið [email protected] eða sms skeyti í síma 8940040 fyrir þann tíma. Hægt er að greiða fyrir keppni með millifærslu á reikning Borðtennisdeildar Víkings: Kennitala 6603850379, reikningsnúmer: 0525-26-3693.

Yfirdómari: Árni Siemsen

Mótsstjórn skipa: Pétur Ó. Stephensen og Jóhann Bjarnason

Dregið verður í mótið fimmtudaginn 30. nóv kl. 18:00 í TBR-Íþróttahúsinu

Skráningar: Pétur s-8940040/[email protected] og sms skeyti.

Síðasti skráningardagur er fimmtudaginn 30. nóv kl. 17:00.

 

Með Borðtenniskveðju

f.h. borðtennisdeildar Víkings

Pétur Ó. Stephensen

Aðrar fréttir