Stórmót HK og STIGA
Í viðhengi er auglýsing fyrir Stórmót HK og STIGA. Getur þú komið þessu inn á bordtennis.is?
Mótið verður haldið í Íþróttahúsinu Snælandsskóla 12. nóvember kl. 10:00
Þátttökugjald 1.500 kr. GREIÐIST Á STAÐNUM
SKRÁNINGAR SKAL SENDA Á NETFANGIÐ [email protected] FYRIR KL. 17 FÖSTUDAGINN 11. NÓVEMBER
DREGIÐ VERÐUR Í ÍÞRÓTTAHÚSINU Í SNÆLANDSSKÓLA KL. 18 FÖSTUDAGINN 11 NÓVEMBER
Leikið verður í riðlum 3-5 lotur og fara 2 efstu upp úr riðli. Eftir riðlakeppnina verður einfaldur útsláttur 4-7 lotur þar til úrslit fást.
Veitt verða verðlaun fyrir 4 efstu sætin í hvorum flokki og pingpong.is umboðsaðili STIGA gefur vegleg verðlaun.
Leikið verður með STIGA 3ja stjörnu kúlum
Mótsstjórn skipa Björn Gunnarsson, Reynir Georgsson og Örn Þórðarson
Yfirdómari er Bjarni Bjarnason
Mynd á forsíðu af verðlaunaafhendingu frá Stórmóti HK og STIGA 2021