Stórmót HK verður 14. nóvember
Stórmót HK verður haldið þann 14. nóvember. Mótið gildir til stiga á lokamóti BTÍ. Keppt verður í karla- og kvenna flokki.
Mótið verður haldið í Íþróttahúsi Snælandsskóla og keppnin hefst kl. 10:00.
Þátttökugjald er 2.000 kr. Greiðist á staðnum eða með millifærslu á reikning HK 0536-26-005337 kt. 630981-0269.
Skráningar skal senda á netfangið [email protected] fyrir kl. 18 föstudaginn 13. nóvember.
Leikið verður í riðlum, 3-5 lotur og fara 2 efstu upp úr riðli. Eftir riðlakeppnina verður einfaldur útsláttur 4-7 lotur þar til úrslit fást. 4 efstu á styrkleikalista verða dregnir beint í töflu.
Veitt verða verðlaun fyrir 4 efstu sætin.
Leikið verður með STIGA 3ja stjörnu kúlum.
Dregið verður í Íþróttahúsi Snælandsskóla kl. 18 föstudaginn 13. nóvember.
Mótsstjórn skipa Óskar Agnarsson, Reynir Georgsson og Björn Gunnarsson.
Yfirdómari er Bjarni Bjarnason.


