Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Styrkleikalisti 1. apríl birtur á vefnum

Styrkleikalisti fyrir 1. apríl 2021 (kallaður eftir viku 14) hefur verið birtur á vefnum, með fyrirvara um réttar skráningar.

Við þessa uppfærslu voru Íslandsmótið 6.-7. mars og Coca-Cola mót Víkings 13. mars lesin inn í styrkleikalistann. Listinn var keyrður upp frá 1. febrúar, þar sem nokkra leiki í norðurlandsriðli 2. deildar frá 12.-13. febrúar vantaði inn á listann frá 1. mars.

Við þessa uppfærslu unnu Sandra Dís Guðmundsdóttir, BH og Steinar Andrason, KR, sig upp í 1. flokk í fyrsta skipti.

Til að skoða styrkleikalistann er valinn flipinn Styrkleikalisti efst á þessari síðu, og er þá hægt að skoða listann og fletta upp einstökum leikmönnum og þeim leikjum sem telja á listanum. Talan fjöldi móta, fyrir aftan hvern leikmann, telur ekki með leiki í deildarkeppninni.

Ef eitthvað er vitlaust skráð, vinsamlegast hafið samband við Ástu ([email protected]).

Listinn var keyrður aftur upp 3. apríl þar sem úrslit í einum leik á Coca-Cola mótinu voru vitlaust skráð.

Forsíðumynd af Söndru tekin af fésbókarsíðu BH.

Aðrar fréttir