Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Styrkleikalisti 1. apríl birtur

Styrkleikalisti fyrir 1. apríl 2022 (kallaður eftir viku 13) hefur verið birtur á vefnum, með fyrirvara um réttar skráningar. Við þessa uppfærslu hafa Íslandsmótið og Íslandsmót unglinga verið lesnin inn í styrkleikalistann.

Við þessa uppfærslu gerðist það m.a. markvert að Stella Karen Kristjánsdóttir, Víkingi, vann sig upp í meistaraflokk kvenna. Þuríður Þöll Bjarnadóttir, KR, vann sig upp í 1. flokk kvenna, og Daníel Hannesson, KR, Reynir Georgsson, HK og Victor Berzoi, HK upp í 1. flokk karla.

Fjórir nýir leikmenn voru metnir inn á listann vegna úrslita úr leikjum á mótum í mars.

Til að skoða styrkleikalistann er valinn flipinn Styrkleikalisti efst á þessari síðu, og er þá hægt að skoða listann og fletta upp einstökum leikmönnum og þeim leikjum sem telja á listanum. Talan fjöldi móta, fyrir aftan hvern leikmann, telur ekki með leiki í deildarkeppninni.

Ef eitthvað er vitlaust skráð, vinsamlegast hafið samband við Ástu ([email protected]).

Forsíðumynd úr myndasafni.

Aðrar fréttir