Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

image description

Styrkleikalisti 1. apríl hefur verið birtur

Styrkleikalisti fyrir 1. apríl 2012 hefur verið birtur á heimasíðu Borðtennissambands Íslands, með fyrirvara um réttar skráningar. 

 
Frá því að síðasti listi var birtur hafa Íslandsmót fullorðinna, Íslandsmót unglinga, Íslandsmót öldunga, Coca-Cola mót Víkings og leikir í 1. deild karla og kvenna í mars verið lesin inn í styrkleikalistann, alls 524 leikir.

Nokkuð var um tilfærslur á listanum í kjölfar Íslandsmótanna og skal þar helst nefna að Víkingurinn Kristinn Sigurðsson er kominn upp í 1. flokk.

ÁMU

Aðrar fréttir