Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Styrkleikalisti 1. desember birtur á vefnum

Styrkleikalisti fyrir 1. desember 2018 (kallaður eftir viku 48) hefur verið birtur á vefnum, með fyrirvara um réttar skráningar.

Frá því að síðasti listi var birtur hafa bikarkeppni BTÍ, styrkleikamót KR, Grand Prix mót HK, aldursflokkamót Dímonar og tvær umferðir í deildakeppni BTÍ verið lesin inn í styrkleikalistann.

Við uppfærslu á þessum lista eru Magnús Gauti Úlfarsson, BH og Magnús K. Magnússon, Víkingi, enn jafnir á toppi karlalistans og hafa báðir hækkað um eitt stig frá síðasta lista. Lára Ívarsdóttir, KR, fór upp í 1. flokk kvenna í fyrsta skipti.

Til að skoða styrkleikalistann er valinn flipinn Styrkleikalisti efst á þessari síðu, og er þá hægt að skoða listann og fletta upp einstökum leikmönnum og þeim leikjum sem telja á listanum. Talan fjöldi móta, fyrir aftan hvern leikmann telur ekki með leiki í deildarkeppninni.

Ef eitthvað er vitlaust skráð, vinsamlegast hafið samband við Ástu ([email protected]) eða Hlöðver ([email protected]).

Á forsíðumyndinni má sjá Láru Ívarsdóttur í Raflandsdeildinni í nóvember, mynd af Fésbókarsíðu BTÍ.

 

ÁMU (uppfært 15.1.2019)

Aðrar fréttir