STYRKLEIKALISTI 1. febrúar 2019 HEFUR VERIÐ BIRTUR
Styrkleikalisti fyrir 1. Febrúar 2019 (kallaður eftir viku 5) hefur verið birtur á vefnum, með fyrirvara um réttar skráningar.
Frá því að síðasti listi var birtur hafa Raflandsdeildin og 2. deild karla ásamt styrkleikamóti víkings verið lesinn inn í styrkleikalistann
Við uppfærslu á þessum lista fór Agnes Brynjarsdóttir , Víkingi, upp í meistaraflokk. Mikið afrek hjá þessari ungu og efnilegu stelpu. Örn Þórðarson, HK, vann sig ennig upp um flokk og er kominn í 1. flokk.
Til að skoða styrkleikalistann er valinn flipinn Styrkleikalisti efst á þessari síðu, og er þá hægt að skoða listann og fletta upp einstökum leikmönnum og þeim leikjum sem telja á listanum. Talan fjöldi móta, fyrir aftan hvern leikmann telur ekki með leiki í deildarkeppninni.
Ef eitthvað er vitlaust skráð, vinsamlegast hafið samband við Ástu ([email protected]) eða Hlöðver ([email protected]).