Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Styrkleikalisti 1. febrúar birtur

Styrkleikalisti fyrir 1. febrúar 2024 (kallaður eftir viku 5) hefur verið birtur á vefnum, með fyrirvara um réttar skráningar.

Frá því að síðasti listi var birtur hafa Unglingamót HK 6. janúar, BH Open 20.-21. janúar, flokkakeppni unglinga 27. janúar og leikir í deildakeppninni í janúar verið lesnir inn í listann.

Í janúar gerðist það m.a. að Alexander Ivanov, BH, fór upp í meistaraflokk í fyrsta skipti og bætti Alexander við sig 75 stigum í janúar. Darian Adam Róbertsson Kinghorn, HK, og Ruben Illera Lopez, Selfossi, komust upp í 1. flokk í fyrsta skipti.

Birkir Aron Ársælsson, Selfossi var metinn inn á listann vegna árangurs í janúar.

Til að skoða styrkleikalistann er valinn flipinn Styrkleikalisti efst á þessari síðu, og er þá hægt að skoða listann og fletta upp einstökum leikmönnum og þeim leikjum sem telja á listanum. Talan fjöldi móta, fyrir aftan hvern leikmann, telur ekki með leiki í deildarkeppninni.

Ef eitthvað er vitlaust skráð, vinsamlegast hafið samband við Ástu, [email protected].

Forsíðumynd tekin af fésbókarsíðu BTÍ.

Aðrar fréttir