Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Styrkleikalisti 1. janúar birtur á vefnum

Styrkleikalisti fyrir 1. janúar 2024 (kallaður eftir viku 1) hefur verið birtur á vefnum, með fyrirvara um réttar skráningar.

Frá því að síðasti listi var birtur hefur Stóra Víkingsmótið 2. desember verið lesið inn í listann.

Í desember gerðist það m.a. Oleksii Yahupov, BR komst upp í 1. flokk í fyrsta skipti.

Kári Byrne, Víkingi, kom aftur inn á listann af óvirka listanum.

Haukur Ingi Ingólfsson, Víkingi og Jón Ingi Jónsson, HK, voru metnir inn á listann vegna árangurs á mótinu.

Dominik í Víkingi var ekki lesinn inn á listann þar sem fullt nafn hans og kennitölu vantar.

Til að skoða styrkleikalistann er valinn flipinn Styrkleikalisti efst á þessari síðu, og er þá hægt að skoða listann og fletta upp einstökum leikmönnum og þeim leikjum sem telja á listanum. Talan fjöldi móta, fyrir aftan hvern leikmann, telur ekki með leiki í deildarkeppninni.

Ef eitthvað er vitlaust skráð, vinsamlegast hafið samband við Ástu, [email protected].

Forsíðumynd tekin af fésbókarsíðu BTÍ.

Aðrar fréttir