Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Styrkleikalisti 1. janúar birtur

Styrkleikalisti fyrir 1 janúar 2022 (kallaður eftir viku 1) hefur verið birtur á vefnum, með fyrirvara um réttar skráningar. Við þessa uppfærslu hafa Pepsímót Víkings 4. desember, aldursflokkamót KR 11. desember og opið mót BR í 2. flokki 18. desember verið lesin inn í styrkleikalistann.

Tveir nýir leikmenn voru metnir inn á styrkleikalistann vegna árangurs síns í fyrstu leikjum sínum, þeir Hlynur Þór Einarsson og Brynjar Petersen.

Til að skoða styrkleikalistann er valinn flipinn Styrkleikalisti efst á þessari síðu, og er þá hægt að skoða listann og fletta upp einstökum leikmönnum og þeim leikjum sem telja á listanum. Talan fjöldi móta, fyrir aftan hvern leikmann, telur ekki með leiki í deildarkeppninni.

Ef eitthvað er vitlaust skráð, vinsamlegast hafið samband við Ástu ([email protected]).

Forsíðumynd af upp og niður móti BH í okt. 2021, tekin af fésbókarsíðu BH.

Aðrar fréttir