Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Styrkleikalisti 1. júlí hefur verið settur á vefinn

Styrkleikalisti fyrir 1. júí 2017 (nefndur eftir viku 26) hefur verið birtur á vefnum, með fyrirvara um réttar skráningar.

Frá því að styrkleikalistinn fyrir 1. júní var birtur hafa þessi mót verið lesin inn í listann:

  • Úrslitaleikir í 2. deild karla, 3. júní
  • Leikur um sæti í 1. deild haustið 2017, 3. júní

Þá hafa allir leikir keppnistímabilið 2016-2017 verið settir inn í styrkleikalistann. Næsti styrkleikalisti verður birtur 1. október 2017.

Enn á eftir að ljúka vinnu við að fjarlægja konur, sem ekki hafa leikið síðan 2012 af listanum. Henni verður haldið áfram á næstunni. Upphaf árs 2013 var valið sem viðmið, þar sem það er viðmiðið fyrir virka leikmenn vegna úthlutunar fulltrúa á ársþing BTÍ 2016.

Til að finna stig leikmanna, sem léku árið 2012 eða fyrr en ekki eru virkir lengur, þarf að fletta þeim upp í Excel skjalinu Styrkleikalisti 1. nóv.2015, sem er að finna í hægri dálkinum á síðunni, undir Nýtt á bordtennis.is.

Til að skoða styrkleikalistann er valinn flipinn Styrkleikalisti efst á þessari síðu, og er þá hægt að skoða listann og fletta upp einstökum leikmönnum og þeim leikjum sem telja á listanum. Talan fjöldi móta, fyrir aftan hvern leikmann telur ekki með leiki í deildarkeppninni.

Ef eitthvað er vitlaust skráð, vinsamlegast hafið samband við Ástu ([email protected]) eða Hlöðver ([email protected]).

Forsíðumynd af Agnesi Brynjarsdóttur og Alexander Ivanov frá Íslandsmóti unglinga.

 

ÁMU

Aðrar fréttir