Styrkleikalisti 1. júní birtur
Styrkleikalisti fyrir 1. júní 2022 (kallaður eftir viku 23) hefur verið birtur á vefnum, með fyrirvara um réttar skráningar. Við þessa uppfærslu hafa Héraðsmót HSK 6. maí, undanúrslit og úrslit í deildakeppni karla 7.-8. maí og umspilsleikur um sæti í 1. deild 1. júní verið lesin inn í styrkleikalistann.
Þetta er síðasti styrkleikalisti keppnistímabilsins 2021-2022. Næsti listi verður birtur 1. október 2022, sbr. reglugerð um styrkleikalista.
Til að skoða styrkleikalistann er valinn flipinn Styrkleikalisti efst á þessari síðu, og er þá hægt að skoða listann og fletta upp einstökum leikmönnum og þeim leikjum sem telja á listanum. Talan fjöldi móta, fyrir aftan hvern leikmann, telur ekki með leiki í deildarkeppninni.
Ef eitthvað er vitlaust skráð, vinsamlegast hafið samband við Ástu ([email protected]).