Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Styrkleikalisti 1. maí birtur

Styrkleikalisti fyrir 1. maí 2022 (kallaður eftir viku 18) hefur verið birtur á vefnum, með fyrirvara um réttar skráningar. Við þessa uppfærslu hafa Mót meistaranna 19. apríl, Vinamót KR 24. apríl og undanúrslit í Keldudeild karla 30. apríl verið lesnin inn í styrkleikalistann.

Til að skoða styrkleikalistann er valinn flipinn Styrkleikalisti efst á þessari síðu, og er þá hægt að skoða listann og fletta upp einstökum leikmönnum og þeim leikjum sem telja á listanum. Talan fjöldi móta, fyrir aftan hvern leikmann, telur ekki með leiki í deildarkeppninni.

Ef eitthvað er vitlaust skráð, vinsamlegast hafið samband við Ástu ([email protected]).

Forsíðumynd frá Vinamóti KR.

Aðrar fréttir