Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Styrkleikalisti 1. maí birtur

Styrkleikalisti fyrir 1. maí 2021 (kallaður eftir viku 17) hefur verið birtur á vefnum, með fyrirvara um réttar skráningar.

Við þessa uppfærslu voru leikir í deildarkeppninni í apríl lesnir inn í styrkleikalistann.

Við þessa uppfærslu gerðist það helst markvert að Óskar Agnarsson, HK, vann sig upp í meistaraflokk í fyrsta skipti.

Til að skoða styrkleikalistann er valinn flipinn Styrkleikalisti efst á þessari síðu, og er þá hægt að skoða listann og fletta upp einstökum leikmönnum og þeim leikjum sem telja á listanum. Talan fjöldi móta, fyrir aftan hvern leikmann, telur ekki með leiki í deildarkeppninni.

Ef eitthvað er vitlaust skráð, vinsamlegast hafið samband við Ástu ([email protected]).

Forsíðumynd af Óskari úr myndasafni.

Aðrar fréttir