Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Styrkleikalisti 1. mars birtur

Styrkleikalisti fyrir 1. mars 2022 (kallaður eftir viku 9) hefur verið birtur á vefnum, með fyrirvara um réttar skráningar. Við þessa uppfærslu hafa Coca-Cola mót Víkings, Íslandsmót öldunga og deildarleikir í febrúar verið lesnir inn í styrkleikalistann.

Gísli Brynjar Kristinsson, BR og Hörður Anton Guðfinnsson, Selfossi voru metnir inn á listann vegna úrslita úr leikjum í deildinni í febrúar.

Við þessa uppfærslu færðust m.a. Damian Kossakowski, BR og Ladislav Haluska, Víkingi upp í 1. flokk.

Til að skoða styrkleikalistann er valinn flipinn Styrkleikalisti efst á þessari síðu, og er þá hægt að skoða listann og fletta upp einstökum leikmönnum og þeim leikjum sem telja á listanum. Talan fjöldi móta, fyrir aftan hvern leikmann, telur ekki með leiki í deildarkeppninni.

Ef eitthvað er vitlaust skráð, vinsamlegast hafið samband við Ástu ([email protected]).

Forsíðumynd úr myndasafni.

Aðrar fréttir