Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Styrkleikalisti 1. mars birtur á vefnum

Styrkleikalisti fyrir 1. mars 2024 (kallaður eftir viku 9) hefur verið birtur á vefnum, með fyrirvara um réttar skráningar.

Frá því að síðasti listi var birtur hafa Bikarkeppni BTÍ 17. febrúar, Íslandsmót öldunga 24. febrúar og leikir í deildakeppninni 10.-11. febrúar verið lesnir inn í listann.

Sebastian Globig, Víkingi, var metinn inn á listann vegna árangurs í bikarkeppninni í febrúar.

Til að skoða styrkleikalistann er valinn flipinn Styrkleikalisti efst á þessari síðu, og er þá hægt að skoða listann og fletta upp einstökum leikmönnum og þeim leikjum sem telja á listanum. Talan fjöldi móta, fyrir aftan hvern leikmann, telur ekki með leiki í deildarkeppninni.

Ef eitthvað er vitlaust skráð, vinsamlegast hafið samband við Ástu, [email protected].

Forsíðumynd tekin af fésbókarsíðu BTÍ.

Aðrar fréttir