Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Styrkleikalisti 1. mars birtur á vefnum

Uppfærður styrkleikalisti fyrir 1. mars 2023 (kallaður eftir viku 10) hefur verið birtur á vefnum, með fyrirvara um réttar skráningar.
Við þessa uppfærslu hefur Íslandsmót öldunga, sem fram fór þann 18. febrúar, verið lesið inn á bráðabirgðalistann, sem birtur 27. febrúar. Áður höfðu BH Open 25.-26. febrúar og leikir í deildakeppninni í febrúar verið lesin inn í styrkleikalistann.

Við þessa uppfærslu gerðist það m.a. að Piotr Herman, BR, vann sig upp í 1. flokk í fyrsta skipti. Auk þess er Lilja Rós Jóhannesdóttir, Víkingi, komin aftur inn á virka listann eftir þátttöku á Íslandsmóti öldunga. Hún endurheimti því toppsæti kvennalistans.

Til að skoða styrkleikalistann er valinn flipinn Styrkleikalisti efst á þessari síðu, og er þá hægt að skoða listann og fletta upp einstökum leikmönnum og þeim leikjum sem telja á listanum. Talan fjöldi móta, fyrir aftan hvern leikmann, telur ekki með leiki í deildarkeppninni.

Ef eitthvað er vitlaust skráð, vinsamlegast hafið samband við Ástu, [email protected].

Forsíðumynd frá Piotr Herman.

Aðrar fréttir