Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Styrkleikalisti 1. mars birtur

Styrkleikalisti fyrir 1. mars 2021 (kallaður eftir viku 10) hefur verið birtur á vefnum, með fyrirvara um réttar skráningar.

Við þessa uppfærslu voru aldursflokkamót KR 6. febrúar, Íslandsmót öldunga 20. febrúar, aldursflokkamót Víkings 21. febrúar og umferðir í 1. og 2. deild sem leiknar voru í febrúar 2021 lesin inn í styrkleikalistann.

Við þessa uppfærslu urðu litlar tilfærslur á leikmönnum á milli styrkleikaflokka.

Til að skoða styrkleikalistann er valinn flipinn Styrkleikalisti efst á þessari síðu, og er þá hægt að skoða listann og fletta upp einstökum leikmönnum og þeim leikjum sem telja á listanum. Talan fjöldi móta, fyrir aftan hvern leikmann, telur ekki með leiki í deildarkeppninni.

Ef eitthvað er vitlaust skráð, vinsamlegast hafið samband við Ástu ([email protected]).

Aðrar fréttir