Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Styrkleikalisti 1. mars hefur verið birtur

Styrkleikalisti fyrir 1. mars 2025 (kallaður eftir viku 10) hefur verið birtur á vefnum, með fyrirvara um réttar skráningar.

Frá því að síðasti listi var birtur hafa BR Open 2. febrúar, Hjálmarsmót KR 15.-16. febrúar, Aldursflokkamót Víkings 23. febrúar og leikir í deildakeppninni í febrúar verið lesin inn í listann.

Kristinn Már Sigurðsson, Víkingi, var metinn inn á listann byggt á árangri á Aldursflokkamóti Víkings.

Til að skoða styrkleikalistann er valinn flipinn Styrkleikalisti efst á þessari síðu, og er þá hægt að skoða listann og fletta upp einstökum leikmönnum og þeim leikjum sem telja á listanum. Talan fjöldi móta, fyrir aftan hvern leikmann, telur ekki með leiki í deildakeppninni.

Ef eitthvað er vitlaust skráð, vinsamlegast hafið samband við Ástu, [email protected].

Forsíðumynd tekin úr myndasafni BTÍ.

Aðrar fréttir