Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Styrkleikalisti 1. nóvember hefur verið birtur

Styrkleikalisti fyrir 1. nóvember 2020 (kallaður eftir viku 45) hefur verið birtur á vefnum, með fyrirvara um réttar skráningar. Við þessa uppfærslu hafa fyrstu tvær umferðirnar í 1. deild og suðurriðli 2. deildar 3.-4. október verið lesin inn í styrkleikalistann.

Við þessa uppfærslu færðist Sól Kristínardóttir Mixa úr BH upp í meistaraflokk í fyrsta skipti.

Tveir nýir leikmenn voru metnir inn á styrkleikalistann vegna árangurs síns í fyrstu leikjum sínum sem fara inn á listann. Norbert Bedo, KR (sem heitir Bedö Norbu á listanum), fór inn með 1578 stig og Grzegorz Kwandrans, BH, fór inn með 1361 stig.

Til að skoða styrkleikalistann er valinn flipinn Styrkleikalisti efst á þessari síðu, og er þá hægt að skoða listann og fletta upp einstökum leikmönnum og þeim leikjum sem telja á listanum. Talan fjöldi móta, fyrir aftan hvern leikmann, telur ekki með leiki í deildarkeppninni.

Ef eitthvað er vitlaust skráð, vinsamlegast hafið samband við Ástu ([email protected]).

Aðrar fréttir