Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Styrkleikalisti 1. október birtur

Styrkleikalisti fyrir 1. október 2025 (kallaður eftir viku 40) hefur verið birtur á vefnum, með fyrirvara um réttar skráningar.

Frá því að síðasti listi var birtur hafa úrslit úr leikjum í deildakeppninni 20.-21. september verið lesin inn í listann.

Vincent Daniel Guerrero Manaure, BH, var metinn inn á listann í ljósi árangurs í leikjum í deildinni.

Til að skoða styrkleikalistann er valinn flipinn Styrkleikalisti efst á þessari síðu, og er þá hægt að skoða listann og fletta upp einstökum leikmönnum og þeim leikjum sem telja á listanum. Talan fjöldi móta, fyrir aftan hvern leikmann, telur ekki með leiki í deildakeppninni.

Ef eitthvað er vitlaust skráð, vinsamlegast hafið samband við Ástu, [email protected].

Frá því að styrkleikalistinn fyrir 1. júní var birtur hafa leikmenn sem léku síðast árið 2021 verið fjarlægðir af listanum. Flestir virkir leikmenn færast því upp um sæti á listanum miðað við listann 1. júní.

Á forsíðunni má sjá A-lið Selfoss í 2. deildinni.

Aðrar fréttir