Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Styrkleikalisti 1. október hefur verið birtur á vefnum

Styrkleikalisti fyrir 1. október 2019 (kallaður eftir viku 40) hefur verið birtur á vefnum, með fyrirvara um réttar skráningar.

Frá því að síðasti listi var birtur hafa innbyrðis leikir Íslendinga í liðakeppni KR og Wales 21. september, leikir á afmælismóti KR 22. september og leikir sem fram fóru fyrstu leikjahelgi í deildakeppni BTÍ 28.-29. september verið lesnir inn í styrkleikalistann.

Til að skoða styrkleikalistann er valinn flipinn Styrkleikalisti efst á þessari síðu, og er þá hægt að skoða listann og fletta upp einstökum leikmönnum og þeim leikjum sem telja á listanum. Talan fjöldi móta, fyrir aftan hvern leikmann, telur ekki með leiki í deildarkeppninni.

Ef eitthvað er vitlaust skráð, vinsamlegast hafið samband við Ástu ([email protected]) eða Hlöðver ([email protected]).

Aðrar fréttir