Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

image description

Styrkleikalisti fyrir 1. apríl 2013 hefur verið settur á vefinn

Styrkleikalisti fyrir 1. apríl 2013 hefur verið birtur á heimasíðu Borðtennissambands Íslands, með fyrirvara um réttar skráningar. 

Frá því að síðasti listi var birtur hafa Íslandsmót fullorðinna, Íslandsmót unglinga, Íslandsmót öldunga, Lokamót Grand Prix og leikir í 1. deild karla og kvenna og 2. deild karla verið lesnir inn í styrkleikalistann, alls 441 leikur.

Við þessa uppfærslu gerðist það m.a. markvert að Sigurjóna Hauksdóttir úr BH vann sig upp í 1. flokk kvenna í fyrsta skipti.


ÁMU  (uppfært 6.4.)

Aðrar fréttir