Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Styrkleikalisti fyrir 1. apríl birtur á vefnum

Styrkleikalisti fyrir 1. apríl 2024 (kallaður eftir viku 14) hefur verið birtur á vefnum, með fyrirvara um réttar skráningar.

Frá því að síðasti listi var birtur hafa Íslandsmótið 1.-3. mars, unglingamót Víkings 10. mars, Íslandsmót unglinga 16.-17. mars og BR Open 23. mars verið lesin inn í listann.

Við þessa uppfærslu vann Guðbjörg Vala Gunnarsdóttir, KR, sig upp í meistaraflokk kvenna í fyrsta skipti. Þá unnu Dawid May-Majewski, BR og Anton Óskar Ólafsson, Garpi, sig upp í 1. flokk karla í fyrsta skipti.

Ibrahim Hossam Al-Masry, BR, var metinn inn á listann vegna árangurs á BR Open.

Til að skoða styrkleikalistann er valinn flipinn Styrkleikalisti efst á þessari síðu, og er þá hægt að skoða listann og fletta upp einstökum leikmönnum og þeim leikjum sem telja á listanum. Talan fjöldi móta, fyrir aftan hvern leikmann, telur ekki með leiki í deildarkeppninni.

Ef eitthvað er vitlaust skráð, vinsamlegast hafið samband við Ástu, [email protected].

Forsíðumynd tekin af fésbókarsíðu BTÍ.

Aðrar fréttir