Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Styrkleikalisti fyrir 1. desember 2017 hefur verið birtur á vefnum

Styrkleikalisti fyrir 1. desember 2017  (kallaður eftir viku 48) hefur verið birtur á vefnum, með fyrirvara um réttar skráningar.

Frá því að síðasti listi var birtur, hafa Grand Prix mót HK 4. nóvember, Kjartansmót KR 12. nóvember og leikir Raflandsdeildinni og í 2. deild karla 18. nóvember verið lesin inn á styrkleikalistann.

Það gerðist helst markvert við þessa uppfærslu að Magnús Gauti Úlfarsson úr BH stökk upp í 7. sæti á karlalistanum enda vann hann alla níu einliðaleikina sem hann keppti í nóvember.

Portúgalinn André Palma Fonseca, sem keppir fyrir BH var metinn inn á listann með 1827 stig byggt á leikjum hans á Grand Prix móti HK.

Til að skoða styrkleikalistann er valinn flipinn Styrkleikalisti efst á þessari síðu, og er þá hægt að skoða listann og fletta upp einstökum leikmönnum og þeim leikjum sem telja á listanum. Talan fjöldi móta, fyrir aftan hvern leikmann telur ekki með leiki í deildarkeppninni.

Ef eitthvað er vitlaust skráð, vinsamlegast hafið samband við Ástu ([email protected]) eða Hlöðver ([email protected]).

 

ÁMU

Aðrar fréttir