Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

image description

Styrkleikalisti fyrir 1. desember hefur verið settur á vefinn

Styrkleikalisti fyrir 1. desember 2014 hefur verið birtur á heimasíðu Borðtennissambands Íslands, með fyrirvara um réttar skráningar. 

Frá því að síðasti listi var birtur hafa Kjartansmót KR 1. nóvember, héraðsmót HSK 14. nóvember, Grand Prix mót HK 15. nóvember, Adidas stigamót Víkings 22. nóvember,  aldursflokkamót Víkings 23. nóvember og leikir í 1. deild karla, 1. deild kvenna og 2. deild karla verið sett inn í listann, alls 510 leikir. 

Við þessa uppfærslu gerðist það m.a. markvert að Dagur B. Kjartansson úr KR vann sig upp í 1. flokk í fyrsta skipti. 

Sjá nánar: Rating 1.12.2014

ÁMU

Aðrar fréttir