Styrkleikalisti fyrir 1. febrúar 2015 hefur verið settur á vefinn
Styrkleikalisti fyrir 1. febrúar 2015 hefur verið birtur á heimasíðu Borðtennissambands Íslands, með fyrirvara um réttar skráningar.
Frá því að síðasti listi var birtur hafa Víkingsmótið 10. janúar, Grand Prix mót KR 18. janúar, leikir í Norðurlandsdeildinni og leikir í 1. deild karla, 1. deild kvenna og 2. deild karla verið sett inn í listann, alls 228 leikir.
Meðal þess sem gerðist við þessa uppfærslu var að Hlynur Sverrisson úr Akri og Guðrún Gestsdóttir úr KR fluttust upp í 1. flokk í fyrsta skipti.
Sjá nánar: Rating 1.2.2015