Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Styrkleikalisti fyrir 1. febrúar 2017 hefur verið birtur

Styrkleikalisti fyrir 1. febrúar 2017 (nefndur eftir viku 5) hefur verið birtur á vefnum, með fyrirvara um réttar skráningar.

Frá því að styrkleikalistinn fyrir 1. janúar var birtur hafa þessi mót verið lesin inn í listann:

  • 7. og 8. umferð í 1. deild karla og kvenna 14. janúar
  • Grand Prix mót KR, 22. janúar
  • Leikir í 2. deild, sem fram fóru í janúar

Enn á eftir að ljúka vinnu við að fjarlægja konur, sem ekki hafa leikið síðan 2012 af listanum. Henni verður haldið áfram á næstunni. Upphaf árs 2013 var valið sem viðmið, þar sem það er viðmiðið fyrir virka leikmenn vegna úthlutunar fulltrúa á ársþing BTÍ 2016.

Til að finna stig leikmanna, sem léku árið 2012 eða fyrr en ekki eru virkir lengur, þarf að fletta þeim upp í Excel skjalinu Styrkleikalisti 1. nóv.2015, sem er að finna í hægri dálkinum á síðunni, undir Nýtt á bordtennis.is.

Til að skoða styrkleikalistann er valinn flipinn Styrkleikalisti efst á þessari síðu, og er þá hægt að skoða listann og fletta upp einstökum leikmönnum og þeim leikjum sem telja á listanum. Talan fjöldi móta, fyrir aftan hvern leikmann telur ekki með leiki í deildarkeppninni.

Ef eitthvað er vitlaust skráð, vinsamlegast hafið samband við Ástu ([email protected]) eða Hlöðver ([email protected]).

 

ÁMU

Aðrar fréttir