Styrkleikalisti fyrir 1. febrúar birtur á vefnum
Styrkleikalisti fyrir 1. febrúar 2026 (kallaður eftir viku 6) hefur verið birtur á vefnum, með fyrirvara um réttar skráningar.
Frá því að síðasti listi var birtur hafa úrslit úr Unglingamót HK 17. janúar, BH Open 23.-25. janúar, BR Open 31. janúar og leikir í deildakeppninn 10.-11. janúar verið lesin inn í listann.
Damian Moszyk, BR; Halldór Alvar Kjartansson, BH; Haukur Elí Sölvason, BH; Serhii Borysenko, BM; Shujun Tang, KR og Tryggvi Týr Marinósson, BH voru metinn inn á listann byggt á árangri á mótum í janúar.
Kjartan Pálsson, Víkingi, kom inn á listann af óvirka listanum.
Meðal þess sem gerðist markvert við þessa uppfærslu er að Karl Andersson Claesson, KR, er kominn upp í meistaraflokk. Benedikt Darri Malmquist, HK og Weronika Grzegorczyk, Garpi eru komin upp í 1. flokk.
Til að skoða styrkleikalistann er valinn flipinn Styrkleikalisti efst á þessari síðu, og er þá hægt að skoða listann og fletta upp einstökum leikmönnum og þeim leikjum sem telja á listanum. Talan fjöldi móta, fyrir aftan hvern leikmann, telur ekki með leiki í deildakeppninni.
Ef eitthvað er vitlaust skráð, vinsamlegast hafið samband við Ástu, [email protected].
Á forsíðunni má sjá Karl á Íslandsmótinu 2025.


