Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Styrkleikalisti fyrir 1. febrúar birtur á vefnum

Styrkleikalisti fyrir 1. febrúar 2023 (kallaður eftir viku 6) hefur verið birtur á vefnum, með fyrirvara um réttar skráningar. Við þessa uppfærslu hafa aldursflokkamót BH 21. janúar og leikir í deildakeppninni í janúar verið lesin inn í styrkleikalistann.

Við þessa uppfærslu gerðist það m.a. að Jörg Sonnentag, Víkingi, fluttist upp í meistaraflokk og Alexander Ivanov, BH, komst upp í 1. flokk. Hann er yngsti leikmaðurinn í 1. flokki karla sem stendur, fæddur árið 2008. Þá náði Nevena Tasic, Víkingi, aftur efsta sætinu á kvennalistanum af Guðrúnu G Björnsdóttur, KR.

Til að skoða styrkleikalistann er valinn flipinn Styrkleikalisti efst á þessari síðu, og er þá hægt að skoða listann og fletta upp einstökum leikmönnum og þeim leikjum sem telja á listanum. Talan fjöldi móta, fyrir aftan hvern leikmann, telur ekki með leiki í deildarkeppninni.

Ef eitthvað er vitlaust skráð, vinsamlegast hafið samband við Ástu, [email protected].

Forsíðumynd af Alexander frá Ingimar Ingimarssyni, tekin á Roskilde cup um síðustu helgi.

Aðrar fréttir