Styrkleikalisti fyrir 1. febrúar hefur verið birtur
Styrkleikalisti fyrir 1. febrúar 2018 (kallaður eftir viku 5) hefur verið birtur á vefnum, með fyrirvara um réttar skráningar.
Frá því að síðasti listi var birtur, hafa Grand Prix mót BH 13. janúar, aldursflokkamót BH 14. janúar, keppni í Raflandsdeildinni 20. janúar og í 2. deild 21. janúar, verið lesin inn í styrkleikalistann.
Við þessa uppfærslu gerðist það helst markvert að Björn Gunnarsson, HK, komst upp í meistaraflokk í fyrsta skipti. Þá komst Þóra Þórisdóttir, KR upp í 1. flokk kvenna.
Til að skoða styrkleikalistann er valinn flipinn Styrkleikalisti efst á þessari síðu, og er þá hægt að skoða listann og fletta upp einstökum leikmönnum og þeim leikjum sem telja á listanum. Talan fjöldi móta, fyrir aftan hvern leikmann telur ekki með leiki í deildarkeppninni.
Ef eitthvað er vitlaust skráð, vinsamlegast hafið samband við Ástu ([email protected]) eða Hlöðver ([email protected]).
Mynd á forsíðu af Birni Gunnarssyni, frá Finni Hrafni Jónssyni.
ÁMU