Styrkleikalisti fyrir 1. janúar 2016 hefur verið birtur
Drög að styrkleikalista fyrir 1. janúar 2016 (viku 1) hafa verið birt á vef BTÍ, með fyrirvara um réttar skráningar. Listinn verður uppfærður þegar úrslit úr héraðsmóti HSK 15. nóvember hafa verið slegin inn í listann. Einnig er vægi leikja í liðakeppni unglinga á Kjartansmótinu 21. nóvember of hátt, sem tekst vonandi að laga fljótlega.
Frá því að styrkleikalistinn fyrir 1. desember var birtur hafa þessi mót verið lesin inn í listann:
Nings styrkleikamót Víkings 5. desember
Leikir í 1. og 2. deild
Til að skoða styrkleikalistann er valinn flipinn Styrkleikalisti efst á þessari síðu, og er þá hægt að skoða listann og fletta upp einstökum leikmönnum og þeim leikjum sem telja á listanum. Stig á listanum eru reiknuð á sama hátt og áður en listinn er nú birtur á vef Tournament Software, www.tournamentsoftware.com. Talan fjöldi móta, fyrir aftan hvern leikmann telur ekki með leiki í deildarkeppninni.
Eftir á að sía frá flesta óvirka leikmenn nema stigahæstu óvirku karlana en það verður gert á næstu dögum, og þá munu flestir virkir leikmenn hækka í sæti á listanum. Þegar búið er að taka frá óvirka leikmenn verður birtur listi yfir óvirka leikmenn á vef BTÍ, svo hægt sé að fletta upp þeirra stigum ef þeir snúa aftur til keppni.
Ef eitthvað er vitlaust skráð, vinsamlegast hafið samband við Ástu ([email protected]) eða Hlöðver ([email protected]).
ÁMU