Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Styrkleikalisti fyrir 1. janúar 2020 hefur verið birtur

Styrkleikalisti fyrir 1. janúar 2020 (kallaður eftir viku 1) hefur verið birtur á vefnum, með fyrirvara um réttar skráningar.

Frá því að síðasti listi var birtur hefur styrkleikamót Víkings 7. desember verið lesið inn í styrkleikalistann.

Sighvatur Karlsson, sem keppti síðast árið 2009, kemur aftur inn á listann með sín gömlu styrkleikastig.

Til að skoða styrkleikalistann er valinn flipinn Styrkleikalisti efst á þessari síðu, og er þá hægt að skoða listann og fletta upp einstökum leikmönnum og þeim leikjum sem telja á listanum. Talan fjöldi móta, fyrir aftan hvern leikmann, telur ekki með leiki í deildarkeppninni.

Ef eitthvað er vitlaust skráð, vinsamlegast hafið samband við Ástu ([email protected]) eða Hlöðver ([email protected]).

Forsíðumynd af keppanda frá byrjendaflokki á Víkingsmótinu, tekin af fésbókarsíðu BTÍ.

Aðrar fréttir