Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Styrkleikalisti fyrir 1. janúar 2023 birtur

Styrkleikalisti fyrir 1. janúar 2023 (kallaður eftir viku 1) hefur verið birtur á vefnum, með fyrirvara um réttar skráningar. Við þessa uppfærslu hafa Bikarkeppni BTÍ 3. desember, Aðventumót BH 10. desember, 2. flokks mót BR 17. desember og leikir í deildakeppninni í desember verið lesin inn í styrkleikalistann.

Styrkleikalistinn fyrir 1. febrúar verður birtur innan örfárra daga.

Til að skoða styrkleikalistann er valinn flipinn Styrkleikalisti efst á þessari síðu, og er þá hægt að skoða listann og fletta upp einstökum leikmönnum og þeim leikjum sem telja á listanum. Talan fjöldi móta, fyrir aftan hvern leikmann, telur ekki með leiki í deildarkeppninni.

Ef eitthvað er vitlaust skráð, vinsamlegast hafið samband við Ástu, [email protected].

Forsíðumynd úr myndasafni Finns Hrafns Jónssonar frá Víkingsmóti sl. haust.

Aðrar fréttir