Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Styrkleikalisti fyrir 1. júní 2026 birtur

Styrkleikalisti fyrir 1. júní 2026 (kallaður eftir viku 23) hefur verið birtur á vefnum, með fyrirvara um réttar skráningar.

Frá því að síðasti listi var birtur hafa úrslit úr Lokamóti BTÍ og Gullfisks 8. maí, Íslandsmóti öldunga 9. maí og Vestfjarðamótinu 30. maí verið lesin inn í listann.

Til að skoða styrkleikalistann er valinn flipinn Styrkleikalisti efst á þessari síðu, og er þá hægt að skoða listann og fletta upp einstökum leikmönnum og þeim leikjum sem telja á listanum. Talan fjöldi móta, fyrir aftan hvern leikmann, telur ekki með leiki í deildakeppninni.

Ef eitthvað er vitlaust skráð, vinsamlegast hafið samband við Ástu, [email protected].

Styrkleikalistinn verður birtur næst 1. október 2026, skv. reglugerð.

Á forsíðunni er mynd frá úrslitaleik í U14 flokki á Vestfjarðamótinu 30. maí.

Aðrar fréttir