Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Styrkleikalisti fyrir 1. júní hefur verið birtur á vefnum

Styrkleikalisti fyrir 1. júní 2023 (kallaður eftir viku 22) hefur verið birtur á vefnum, með fyrirvara um réttar skráningar.
Við þessa uppfærslu hefur umspilsleikurinn þann 24. maí um sæti í 1. deild á næsta keppnistímabili verið lesinn inn í styrkleikalistann, en það var eini leikurinn sem fram fór í maí.

Til að skoða styrkleikalistann er valinn flipinn Styrkleikalisti efst á þessari síðu, og er þá hægt að skoða listann og fletta upp einstökum leikmönnum og þeim leikjum sem telja á listanum. Talan fjöldi móta, fyrir aftan hvern leikmann, telur ekki með leiki í deildarkeppninni.

Ef eitthvað er vitlaust skráð, vinsamlegast hafið samband við Ástu, [email protected].

Forsíðumynd tekin af fésbókarsíðu BTÍ.

Aðrar fréttir