Styrkleikalisti fyrir 1. júní hefur verið birtur á vefnum
Styrkleikalisti fyrir 1. júní 2024 (kallaður eftir viku 23) hefur verið birtur á vefnum, með fyrirvara um réttar skráningar.
Frá því að síðasti listi var birtur hefur lokamót BTÍ 15. maí, og umspilsleikir um sæti í 1. og 2. deild verið lesin inn í listann.
Þetta er síðasta birting styrkleikalista á keppnistímabilinu 2023-2024. Skv. reglugerð um styrkleikalista verður listinn næst birtur þann 1. október.
Til að skoða styrkleikalistann er valinn flipinn Styrkleikalisti efst á þessari síðu, og er þá hægt að skoða listann og fletta upp einstökum leikmönnum og þeim leikjum sem telja á listanum. Talan fjöldi móta, fyrir aftan hvern leikmann, telur ekki með leiki í deildakeppninni.
Ef eitthvað er vitlaust skráð, vinsamlegast hafið samband við Ástu, [email protected].
Forsíðumynd tekin af fésbókarsíðu BTÍ.