Styrkleikalisti fyrir 1. júní hefur verið birtur
Styrkleikalisti fyrir 1. júní 2025 (kallaður eftir viku 24) hefur verið birtur á vefnum, með fyrirvara um réttar skráningar.
Frá því að síðasti listi var birtur hafa þessi mót verið lesin inn í listann:
Lokamót unglingamótar HK og Butterfly 3. maí
Íslandsmót öldunga 10. maí
Lokamót mótaraðar BTÍ og Ice-Group 16. maí
Borðtennismót UMFB 31. maí – 1. júní
Elise Plessis, Tindastóli og Holger Kuehne, Selfossi, voru metin inn á listann í ljósi árangurs á mótum í maí.
Til að skoða styrkleikalistann er valinn flipinn Styrkleikalisti efst á þessari síðu, og er þá hægt að skoða listann og fletta upp einstökum leikmönnum og þeim leikjum sem telja á listanum. Talan fjöldi móta, fyrir aftan hvern leikmann, telur ekki með leiki í deildakeppninni.
Ef eitthvað er vitlaust skráð, vinsamlegast hafið samband við Ástu, [email protected].
Þetta er síðasti styrkleikalisti keppnistímabilsins 2024-2025. Næsti listi verður birtur 1. október, skv. reglugerð.
Á forsíðunni má sjá Nevenu frá Smáþjóðaleikunum, mynd tekin af vef leikanna.